fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. mars 2026 14:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónleikar Laufeyjar í næstu viku verða teknir með trompi því á þriðjudag opnar Laufeyland í Smáralind og geta tónleikagestir og aðrir komið sér í gírinn. Tónleikarnir með Laufeyju fara fram í Kórnum 14. og 15. mars.

Laufeyland er einstök Pop-up upplifun innblásin af tónlist, fagurfræði og töfrum Laufeyjar eins og segir í tilkynningu Senu.
Verslunin opnar þriðjudaginn 10. mars kl. 12 og verður opin alla daga frá kl. 12-20 fram að seinni tónleikum, sunnudaginn 15. mars.

Á staðnum verður fjölbreytt afþreying í boði alla daga til dæmis gjafaleikir, lifandi tónlist og einnig verður Laufey varningur til sölu.
Laufey upplifunarrýmið er staðsett rétt við Garðinn, nýju mathöllina í Smáralind sem hefur slegið í gegn. Laufey Happy Hour verður í boði á nokkrum stöðum þar á milli kl. 15-17 alla vikuna.

Laufey stemning verður í Smáralind alla vikuna fyrir tónleikana og geta viðskiptavinir sem versla fyrir 5.000 kr. eða meira í verslunum Smáralindar tekið þátt í léttum leik með vinningum að verðmæti 80.000 kr., þar á meðal eru Gull miðar á tónleikana.

Tónlist Laufeyjar mun hljóma í húsinu svo það verður því sannkölluð Laufey upphitunarhátíð í Smáralind dagana 10.-15. mars!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú

Öðlaðist aftur trú á samfélagið þegar hann varð vitni að atviki á Arnarnesbrú
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“

Minnist frægs föður síns með hjartnæmri færslu – „Hann finnur ekki fyrir sársauka lengur“
Fréttir
Í gær

Sigurður Ingólfsson er látinn

Sigurður Ingólfsson er látinn
Fréttir
Í gær

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt

Fær að halda hundunum sínum eftir að bæjaryfirvöld á Akranesi gengu of langt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann

Fimmtán milljónum stolið af bargesti í Reykjavík eftir að þokkafull kona hafði tælt hann
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“