fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Liverpool opnar samtalið

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 6. mars 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur sett sig í samband við RB Leipzig yfir hugsanlegum skiptum Yan Diomande í sumar. Florian Plettenberg á Sky í Þýskalandi greinir frá þessu.

Talið er að Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, vilji styrkja sig fram á við í sumar, ekki síst þar sem óvissa ríkir um framtíð Mohamed Salah, sem og Federico Chiesa.

Liverpool hafði áður áhuga á Michael Olise hjá Bayern Munchen, en samkvæmt fréttinni er sá möguleiki ekki talinn raunhæfur lengur og því hafi athyglin beinst að Diomande.

Leipzig mun þó krefjast allt að 100 milljóna evra fyrir leikmanninn og það gæti reynst stór hindrun. Bayern Munchen hefur einnig fylgst með honum en hátt verð hefur haldið félaginu frá samningaviðræðum.

Diomande hefur átt gott tímabil í Þýskalandi með Leipzig og skorað tíu mörk auk þess að leggja upp sjö í 26 leikjum.

Liverpool gæti þó þurft að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð til að eiga raunhæfa möguleika á að landa Diomande.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Horfa til framherja Tottenham – Líklega einfalt að fá hann ef liðið fellur

Horfa til framherja Tottenham – Líklega einfalt að fá hann ef liðið fellur
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Elon Musk fær á baukinn – Ógeðsleg ummæli um Diogo Jota meðal annars látin falla

Elon Musk fær á baukinn – Ógeðsleg ummæli um Diogo Jota meðal annars látin falla
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sat við hlið Kjartans og rifjaði upp þegar hann gerði honum óleik í viðtali – „Ég gleymi því aldrei“

Sat við hlið Kjartans og rifjaði upp þegar hann gerði honum óleik í viðtali – „Ég gleymi því aldrei“
433Sport
Í gær

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar
433Sport
Í gær

Útsendarar Real Madrid mættu til að fylgjast með Tonali

Útsendarar Real Madrid mættu til að fylgjast með Tonali
433Sport
Í gær

„Þetta er auðvitað geggjaður ferill“

„Þetta er auðvitað geggjaður ferill“
433Sport
Í gær

City og Chelsea hafa áhuga á sama miðjumanninum

City og Chelsea hafa áhuga á sama miðjumanninum