
Walid Regragui hefur tilkynnt að hann sé hættur sem landsliðsþjálfari Marokkó eftir frábær fjögur ár í starfi.
Hann stígur til hliðar aðeins þremur mánuðum fyrir HM vestan hafs, en Marokkó hefur þegar tryggt sér sæti í lokakeppninni.
Regragui fór með Marokkó í úrslitaleik Afríkukeppninnar í vetur, þar sem liðið tapaði fyrir Senegal. Þá stýrði hann liðinu í undanúrslit HM 2022 og vann lið eins og Spán, Portúgal og Belgíu á leið sinni þangað. Var þetta í fyrsta sinn sem afrískt lið nær þessum árangri.
Regragui er klárlega afar vel liðinn í Marokkó og þakkarkveðjum rignir yfir hann frá stuðningsmönnum. Sjálfur þakkar hann þeim sömuleiðis fyrir, en telur að liðið hafa þurft nýtt blóð og nýja sýn til að taka næstu skref.
Knattspyrnusamband Marókkó hefur þegar ráðið arftaka hans, Mohamed Ouahbi, sem stýrði U-20 ára landsliðinu til heimsmeistaratitils í Síle á síðasta ári.