fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Baunað á einn vinsælasta fréttamann heims – Athæfi hans sagt hættulegt fyrir fjölmiðla

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 18:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano, sem er þekktur fyrir félagaskiptafregnir sínar, hefur fengið mikla gagnrýni eftir að hafa birt kynningarmyndband fyrir mannúðarsamtök tengd Sádi-Arabíu.

Romano sagði til að mynda í myndbandinu að Sádi-Arabía væri í efsta sæti á lista Sameinuðu þjóðanna yfir mannúðaraðstoð.

Myndbandið vakti þó hörð viðbrögð. Margir blaðamenn og aðrir töldu óviðeigandi að Romano kynnti slíkt verkefni í ljósi gagnrýni sem stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa fengið, meðal annars vegna morðsins á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018.

Blaðamaðurinn John Cross hjá Mirror var meðal þeirra sem gagnrýndu Romano. „Skammastu þín. Blaðamenn ættu að standa saman,“ skrifaði hann.

Í grein á Telegraph segir að athæfi Romano sé beinlínis hættulegt fyrir fótboltaumfjöllun í fjölmiðlum.

Þá hefur almenningur ekki látið sitt eftir liggja og margir hjólað í Romano.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum