fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fréttir

Hökkuðu sig inn í umferðarmyndavélar og kortlögðu ferðir Khameini mánuðum saman

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. mars 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelska leyniþjónustan Mossad er sögð hafa haft um árabil aðgang að umferðarmyndavélum í Teheren, höfuðborg Írans, og notað hann til að fylgjast með æðsta leiðtoga landsins, lífvörðum hans og öðrum hátt settum embættismönnum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Financial Times um undirbúning og aðdraganda þess að Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, var drepinn í loftárás Bandaríkjanna og Ísraels um liðna helgi.

Í umfjölluninni kemur fram að Ísraelsmenn hafi fengið aðgang að nánast öllum myndavélum borgarinnar, sem írönsk stjórnvöld nota meðal annars til að fylgjast með andstæðingum stjórnarinnar og eigin þegnum, og þannig rakið ferðir lykilaðila.

Fram kemur að myndir hafi verið sendar til yfirvalda í Tel Aviv sem gerði Mossad kleift að afla ítarlegrar vitneskju um heimilisföng lífvarða, vinnuáætlanir þeirra og hverja þeir væru að vernda. Þá gátu þeir séð hvar þeir lögðu bílum sínum þegar þeir komu að höfuðstöðvum Khameini við Pasteur-stræti í miðborg Teheran.

Ísraelsmenn búa yfir mikilli tækniþekkingu eins og sannaðist þegar þeir komu fyrir sprengjum í 5.000 símboðum Hezbollah-liða á haustmánuðum 2024. Símboðarnir sprungu nær allir samtímis með þeim afleiðingum að fjölmargir liðsmenn samtakanna örkumluðust.

Eftirlit Ísraelsmanna í Íran er sagt hafa leitt til þess að Khamenei féll á laugardag eftir að flugvélar, sem flogið var beint frá Ísrael, skutu allt að 30 sprengjum á dvalarstað hans og fjölskyldu hans.

Í umfjöllun Financial Times kemur fram að það hafi ekki verið nein tilviljun að árásin var framin þennan tiltekna dag á þessum tiltekna tíma. Yfirvöld í Ísrael vissu nefnilega nákvæmlega hvar hann var eftir margra mánaða undirbúning.

Í umfjöllun blaðsins kemur einnig fram að ísraelska leyniþjónustan hafi truflað um það bil tólf farsímamöstur nálægt Pasteur-stræti, þannig að símar virtust uppteknir þegar hringt var í þá og öryggissveitir æðsta klerksins gátu ekki tekið við mögulegum viðvörunum.

„Við þekktum Teheran eins og við þekkjum Jerúsalem,“ segir ísraelskur njósnafulltrúi sem Financial Times ræddi við. CIA, bandaríska leyniþjónustan, er einnig sögð hafa haft uppljóstrara á svæðinu sem veitti mikilvægar upplýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagði fyrrum sambýliskonuna hafa kært sig fyrir heimilisofbeldi til að hefna sín fyrir sambandsslitin

Sagði fyrrum sambýliskonuna hafa kært sig fyrir heimilisofbeldi til að hefna sín fyrir sambandsslitin
Fréttir
Í gær

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan