fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Hótaði lögreglumanni í Vestmannaeyjum ítrekað lífláti

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 2. mars 2026 16:30

Frá Vestmannaeyjum. Mynd: Óskar Friðriksson. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann í Vestmannaeyjum fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 3. júlí árið 2024, á heimili sínu og annars staðar, veist með ofbeldi og hótunum um ofbeldi gegn lögreglumönnum sem voru við skyldustörf,

Annars vegar er hann sakaður um að hafa ýtt við lögreglumanni við stiga á neðri hæð hússins þar sem hann bjó.

Hins vegar er hann sakaður um að hafa ýtt í öxl annars lögreglumanns og endurtekið hótað lögreglumanninum lífláti, á heimili ákærða, í lögreglubíl á leið á lögreglustöðina og á sjálfri Lögreglustöðinni að Faxastíg 42 í Vestmannaeyjum.

Málið verður þingfest í dómsal Héraðsdóms Suðurlands í Vestmannaeyjum, að Heiðarvegi 15, þann 12. mars næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Banaslys í Skorradalsvatni

Banaslys í Skorradalsvatni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri