fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Leggja til aðra lausn en Borgarlínu – „Hneppi íbúa þar nánast í stofufangelsi á meðan“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 15:00

Gatnamót Suðurlandsbrautar og Vegmúla skv. auglýstu deiliskipulagi, vegna Borgarlínu. Mynd: Reykjavíkurborg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ, Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og Runólfur Ágústsson stjórnarmaður í Fluglestinni þróunarfélagi ehf. leggja til að Borgarlína verði slegin út af borðinu. Þeir eru langt í frá þeir fyrstu til þess enda um dýra, umfangsmikla og umdeilda framkvæmd að ræða. Þremenningarnir leggja þó ekki til eins og sumir gagnrýnendur að gera ekkert í staðinn fyrir Borgarlínu heldur telja þeir mun heppilegri lausn að koma upp lestakerfi bæði innan höfuðborgarsvæðisins og frá því til Suðurnesja. Fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði vill hins vegar meina að meirihluti bæjarstjórnar hafi komið í veg fyrir að þessari hugmynd yrði hrint í framkvæmd fyrir um áratug síðan.

Þetta kemur fram í sameiginlegri grein þeirra á Vísi.

Þremenningarnir segja mjög skiljanlegt að mikið hafi verið rætt um Borgarlínu og þörfina á samgöngubótum á höfuðborgarsvæðinu. Þörfin fyrir betri samgöngur, styttri ferðatíma og aukna burðargetu í samgöngukerfinu sé augljós, og álag á helstu stofnæðum hafi lengi verið vaxandi áskorun þannig að daglegur veruleiki of margra sé að sitja föst í umferðinni.

Þess vegna sé mikilvægt að skoða fleiri leiðir en Borgarlínu. Sérstaklega á leggnum milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar en þessi tenging sé ein sú mikilvægasta á höfuðborgarsvæðinu — fyrir íbúa, þjónustu, atvinnulíf. Spyrja þurfi hvað skili mestum ávinningi í samgönguframkvæmdum. Ljóst sé að framkvæmdir við Borgarlínu muni hafa of mikið rask í för með sér:

„Hætt er við því að lagning Borgarlínu, ofanjarðar á annarri stofnbrautinni milli Reykjavíkur og Hafnafjarðar, loki eða takmarki umferð um þær árum saman á meðan á framkvæmdum stendur og hneppi íbúa þar nánast í stofufangelsi á meðan.“

Lest

Lausnin sé að nýta gömul áform um lest á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar og skoða hvort þau gagnist ekki við að sameina við áform um Borgarlínulegg til Hafnarfjarðar, auk þess að tengja Reykjanes og höfuðborgarsvæðið saman í eitt atvinnu- og þjónustusvæði. Lestarlína undir borginni sé lausn sem geti boðið upp á meiri burðargetu, meiri hraða, meiri fyrirsjáanleika og stöðugri ferðatíma, óháð umferð og veðri. Slík geti tengt saman kjarna svæðisins með skýrum hætti og skapað innviði sem standi í áratugi.

Hægt sé með þessu að sameina borgarlest sem þjóni daglegum ferðum innan höfuðborgarsvæðisins og lest sem tengi borgina við Reykjanesbæ og Keflavíkurflugvöll. Með því að byggja lestarlínu í göngum undir borginni með tvöföldum teinum verði línan ekki aðeins tenging fyrir ferðamenn til og frá flugvellinum, heldur hluti af daglegu samgöngukerfi borgarbúa og íbúa á Reykjanesi. Tíðni ferða skipti þar sköpum: þegar kerfi sé nógu þétt og áreiðanlegt verði það raunhæfur valkostur sem fólk geti treyst á í vinnu, skóla og daglegum erindum. Hér sé ótalið að lest í göngum létti á bílaumferð um stofnbrautir á yfirborði, en þrengi ekki að þeim eins og Borgarlína.

Telja þeir heppilegast að endastöðvar fyrir borgarhluta þessa lestakerfis verði í Hafnarfirði og á BSÍ en að síðan verði stöðvar í Vogum og Reykjanesbæ með endastöð undir komu- og brottfararsölum flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Einnig sé hægt að hafa sérstaka hraðlest fyrir flugfarþega.

Kostnaðartölur eru ekki nefndar í greininni en í staðinn minnt á að um sé að ræða samgöngubætur fyrir fjölmennasta svæði landins:

„Áformuð Fjarðaheiðagöng áttu að kosta 50 milljarða króna og átti að þjóna tiltölulega fáum. Hér er um að ræða framkvæmd sem þjónar hundruðum þúsunda og yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar.“

Segja þremenningarnir að meta þurfi hvort lest í göngum geti skilað meiri burðargetu, styttri ferðatíma, meiri fyrirsjáanleika og sterkari langtímaávinningi en fyrirhuguð Borgarlína. Kominn sé tími til að hugsa upp á nýtt heildstætt um samgöngur milli Reykjavíkur, Hafnafjarðar, Reykjanesbæjar og Keflavíkurflugvallar.

Grein Runólfs, Orra og Kjartans er hægt að kynna sér nánar hér.

Stoppað

Gunnar Axel Axelsson fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fyrrum bæjarstjóri í Vogum fagnar grein þremenninganna í pistli á Facebook. Hann segir um löngu tímabært verkefni að ræða sem hefði getað orðið að veruleika þegar árið 2018 ef þáverandi meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefði ekki komið í veg fyrir það.

Fram að kosningum það ár mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn og Björt Framtíð meirihluta en Framsóknarflokkurinn tók sæti Bjartrar Framtíðar eftir kosningarnar. Væntanlega á Gunnar Axel við fyrrnefnda meirihlutann en hann sat sjálfur í bæjarstjórn frá 2010-2018. Fyrra kjörtímabilið í meirihluta en það seinna í minnihluta.

Gunnar Axel segir að öll sveitarfélög á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafi samþykkt að taka þátt í undirbúningi þessa verkefnis en þáverandi meirihluti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafi stöðvað það með því að nýta neitunarvald sitt. Þetta hafi þó á þeim tíma verið hugsað sem viðbót við almenningssamgöngur en ekki stillt upp á móti Borgarlínu. Segja megi að Hafnarfjarðabær hafi stöðvað mikilvægasta samgöngumál í sögu þjóðarinnar. Það sé fagnaðarefni að þeir sem hafi verið á móti þessu á sínum tíma hafi nú skipt um skoðun. Er þá Gunnar Axel væntanlega að vísa til að oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði lýsi yfir stuðningi sínum en Orri var þó ekki í bæjarstjórn 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“