

Segir blaðið frá því að ekki sé lengur hægt að fá Smjörva á kaffistofum og í mataraðstöðu. Kemur fram að sumir starfsmenn komi nú með smjör að heiman.
Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans, staðfestir tíðindin við blaðið og segir að ástæðan sé í raun einföld. Bertolli sé næringarlega betur samsett vara með lægra hlutfall mettaðrar fitu og hærra hlutfall ómettaðrar fitu.
Það sem skiptir þó ef til vill mestu er að það er mun ódýrara en Smjörvinn þar sem innkaupsverð er allt að þriðjungi lægra.