fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Hillir undir lok rannsóknar á mannsláti á Kársnesi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 15:35

Mynd frá vettvangi í lok nóvember.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grískur maður um þrítugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. mars á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í þágu rannsóknar hennar á andláti fertugs Portúgala í heimahúsi á Kársnesi Kópavogi í lok nóvember.

Að sögn Eiríks Valbergs, fulltrúa hjá rannsóknarsviði lögreglunnar, er rannsókn málsins langt komin. Aðspurður hvort hann sjái fyrir endann á rannsókninni segir hann:

„Já, við gerum það. En við erum að bíða eftir gögnum. Vð erum mjög langt komin með okkar rannsókn en erum að bíða eftir utanaðkomandi gögnum.“

Er um að ræða gögn erlendis frá. Aðspurður hvenær von sé á þessm gögnum segir hann:

„Það er ómögulegt að segja en við gerum okkur vonir um að síðustu gögnin skili sér í þessari viku eða þeirri næstu.“

Má af þessu ráða að ekki sé ýkja langt þar til rannsókn málsins lýkur. Margt er á huldu um málið en vitað er að hinn grunaði og hinn látni þekktust og að stunguáverkar voru á hinum látna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Banaslys í Skorradalsvatni

Banaslys í Skorradalsvatni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri