fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stórt fíkniefnamál fyrir dóm: Fimm menn af víetnömskum uppruna ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 09:00

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært fimm menn í stóru og víðtæku fíkniefnamáli. Fjórir af mönnunum eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnabrot. Eru þeir sagðir hafa í félagi, í ótilgreindan tíma og fram til 22. júlí 2024, þegar lögreglan lét til skarar skríða gegn þeim, tekið á móti, varðveitt, dreift og selt fíkniefni af óþekktu magni og ýmsum tegundum.

Við húsleitir víðsvegar um höfuðborgarsvæðið fundust um 20 kg af hassi en töluvert minna magn af ýmsum öðrum fíkniefnum, t.d. MDMA, amfetamíni, kókaíni og ketamíni. Einnig fannst mikið af kannabisblönduðu sælgæti, brjóstsykri og gúmmíböngsum. Ennfremur fundust um 10 g af LDS og eitthvað af Diazepam.

Efnin fundust í bíl og í húsnæði víðsvegar í Kópavogi og Reykjavík, þ. á m. Furugerði, Dvergshöfða, Engihjalla, Smiðjuvegi, Réttarholtsvegi og Borgargerði.

Mennirnir fjórir sem hér um ræðir eru allir á fertugsaldri og bera allir víetnömsk nöfn, þrír í bland við íslensk nöfn.

Sextugur sakborningur

Fimmti maðurinn er miklu eldri, sextugur. Hann ber víetnamskt nafn en er kanadískur ríkisborgari. Hann er ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa 7. júlí 2024 flutt til landsins rúmlega 30 kg af maríhúana með farþegaflugi til Keflavíkurflugvallar, en efnin faldi hann í ferðatöskum.

Eftir að hann kom út af flugvellinum afhenti hann tveimur af sakborningunum áðurnefndu töskurnar og þeir komu fíkniefnunum í geymslu að Smiðjuvegi í Kópavogi. Þar fann lögregla rúmlega 10 kg af maríhúana þann 22. júlí og lagði hald á þau efni.

Auk þess að krefjast þess að mennirnir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar er krafist upptöku á fíkniefnunum sem fundust, auk reiðufjár í ýmsum myntum, þar af 1,5 milljónir í íslenskum krónum, einnig evrur, víetnömsk mynt og dollarar.

Einnig er krafist upptöku á ýmsum búnaði til fíkniefnavinnslu, snjallsímum, peningaskáp, fjórum ferðatöskum, öryggimyndavélakerfi og fleiru.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 6. mars næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova