fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Rósin snýr frá Samfylkingunni og hallar sér að Vinstrinu – „Það er búið að vera helvítis vesen á þeim alla tíð“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 15:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rósin, aðildarfélag Samfylkingarinnar, sagði sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík á dögunum. Að sögn formannsins, Guðmundar Inga Þóroddssonar, á Rósin nú í samtali við fulltrúa Vinstrisins (sameiginlegt framboð VG og Vors til vinstri) um mögulegt samstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Guðmundar á Facebook.

Guðmundur segist hafa starfað innan Samfylkingarinnar í 12 ár og á þeim tíma lagt sitt af mörkum til stefnumótunar og baráttunnar fyrir mannréttindum og velferð. Hann hafi sjálfur lært hvað umbreyting getur skipt miklu máli í lífinu enda gekk hann ungur í gegnum djúpa lífskreppu og þurfti að byggja sig upp aftur frá grunni. Hann segist trúa því að fyrirmyndir skipti máli og að fólk með lífsreynslu eigi fullt erindi í stjórnmálin.

Fyrr í dag birti Heimildin frétt um klofning innan Samfylkingarinnar í Reykjavík en þar sagðist Guðmundur upplifa sig sem afgangsstærð og hafa fundið fyrir mótlæti vegna sakaferils síns, en Guðmundur komst ítrekað í kast við lögin á árum áður en hefur síðan snúið blaðinu við og barist fyrir hagsmunum fanga sem formaður Afstöðu. Heimildin ræddi einnig við flokksmenn innan Samfylkingarinnar sem segja að Rósin hafi lengi verið til vandræða innan flokksins og í raun í eins konar stjórnarandstöðu innan flokksins.

„Það er búið að vera helvítis vesen á þeim alla tíð,“ sagði einn flokksmaður í skjóli nafnleyndar.

Til átaka kom innan Samfylkingarinnar í Reykjavík eftir að Guðmundi Inga var hafnað þegar ákvörðun var tekin um að hann fengi ekki 7. sæti á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar, þrátt fyrir að hann hafi verið kosinn í það sæti í prófkjöri. Vísaði uppstillingarnefnd til þess að ekki heði tekist að mynda traust milli Guðmundar og flokksins og ekki hægt að bjóða fólki sæti sem hafi haft í hótunum eða eigi í viðræðum við aðra flokka.

Yfirlýsing Guðmundar:

„Ég hef átt samtöl við fulltrúa Vor til vinstri um mögulegt samstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík. Þau samtöl snúast um hvort slíkt samstarf geti styrkt baráttumálefni jafnaðarstefnunnar.

Stjórn Rósarinnar hefur verið upplýst um þessi samtöl og ég hef rætt við hana um þá möguleika sem kunna að felast í breiðari vinstri samstöðu..
Ég hef starfað innan Samfylkingarinnar í tólf ár og lagt mitt af mörkum til stefnumótunar og baráttu í mannréttinda og velferðarmálum. Sú vinna hefur byggt á þeirri sannfæringu að samfélagið þurfi að standa með fólki í raun og að opna þurfi dyrnar breiðar fyrir fjölbreytta þátttöku.

Mitt eigið líf hefur kennt mér hvað umbreyting getur skipt miklu máli. Ég fór ungur í gegnum djúpa lífskreppu og þurfti að byggja mig upp frá grunni. Í því ferli leitaði ég aftur í barnatrú mína og fann þar styrk sem hefur fylgt mér síðan. Sú reynsla hefur mótað sýn mína á ábyrgð, velferð og mikilvægi þess að samfélagið gefi iðrandi fólki raunverulegt annað tækifæri.

Ég trúi því að fyrirmyndir skipti máli og að fólk með lífsreynslu eigi fullt erindi í stjórnmálum. Lýðræði verður sterkara þegar fleiri raddir fá að heyrast og þegar reynsla úr raunveruleikanum fær að móta ákvarðanir.

Ég mun ekki fara nánar út í einstök atriði á meðan formleg ferli annarra aðila standa yfir. Ef niðurstaða næst í þeim samtölum sem nú eiga sér stað mun Rósin taka afstöðu og kynna hana með formlegum hætti þegar þar að kemur.

Markmið mitt er að leggja mitt af mörkum til sterkrar og trúverðugrar vinstri hreyfingar sem stendur með fólki í verki.
Guðmundur Ingi Þóroddsson“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova