fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Kirkjugarðar Reykjavíkur biðla til fólks að hætta þessu – Sjáðu myndirnar

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 08:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að gefnu tilefni biðla Kirkjugarðar Reykjavíkur til almennings um að fóðra ekki fugla í görðunum en borið hefur á því undanfarið að matarleifum sé dreift um garðana.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kirkjugörðum Reykjavíkur og fylgja henni myndir sem teknar hafa verið í görðunum síðustu vikur.

Bent er á það að samkvæmt sjöundu grein reglna um umgengni í kirkjugörðunum sé óheimilt að skilja eftir á leiðum eða götum garðanna mold, jurtaleifar eða nokkuð það sem veldur óprýði eða truflun.

„Matarleifar geta valdið óhreinindum og óprýði í görðunum sem brýtur gegn umgengnisreglum. Þá getur fóðrun einnig laðað að önnur dýr en ætlað er að fóðra, svo sem máva og rottur, sem valdið geta bæði óþrifnaði og skemmdum,“ segir í tilkynningunni.

„Við vitum að þetta er gert af góðum hug og umhyggju og við hvetjum fólk til að huga að fuglunum í kuldanum en kirkjugarðar eru friðhelgir samkvæmt lögum. Starfsfólk og stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur mælist til þess að umgengni um kirkjugarðana endurspegli kyrrð og kærleika og við biðjum gesti garðanna vinsamlegast að fóðra fuglana ekki í görðunum og virða reglur um umgengni,” segir Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Banaslys í Skorradalsvatni

Banaslys í Skorradalsvatni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri