fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kona tók bíl traustataki eftir að hafa ógnað bílstjóranum með hnífi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 18. febrúar var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir konu fyrir ýmis brot. Ber þar hæst að hún var sökuð um að hafa á fimmtudagskvöldi í september árið 2023, á bifreiðastæði í Reykjavík, hótað konu sem sat undir stýri í bíl, ógnað henni með hnífi og neytt hana þannig til að fara út úr bílnum. Hún ók síðan burtu á bílnum, stöðvaði bílinn á öðrum stað og skildi hann eftir, en stal áður umslagi úr hanskahólfi bílsins sem í voru 5.500 krónur.

Í öðru lagi er konan ákærð fyrir þjófnað úr verslun Kringlunnar og í þriðja lagi fyrir akstur án ökuréttinda.

Konan játaði sök fyrir dómi en samkvæmt sakavottorði var hún árið 2019 dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Einnig hefur hún hlotið dóm fyrir ölvunarakstur.

Var hún dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 400 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs. Ef hún greiðir ekki sektina innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins þarf hún að sitja í fangelsi í 24 daga.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”