fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ósátt við hækkun skráningargjalds – HÍ ætti frekar að lækka reikninginn á Jómfrúnni

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. febrúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau Andrea Edda Guðlaugsdóttir og Eiríkur Kúld Viktorsson, nemendur við HÍ og stúdentaráðsliðar Vöku, birta grein á Vísir.is þar sem þau andmæla hækkun skráningargjalds við HÍ, úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund.

„Við þetta mun greiðslubyrði stúdenta hækka um 33% á meðan tekjuaukning skólans nemur einungis broti af því fjármagni sem hann vantar,“ segja þau og fullyrða að ákvörðunin brjóti gegn grunngildum skólans.

Ennfremur skrifa þau:

„Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands fullyrðir að raunkostnaður við skrásetningu eins nemanda nemi 180.000 krónum á ári. Hvernig má vera að raunkostnaður við skrásetningu eins nemanda við Háskóla Íslands sé 180.000 krónur? Graflaxinn á Jómfrúnni er dýr – hann er þó ekki svo dýr. Logi Einarsson háskólamálaráðherra svaraði þeirri fullyrðingu rektors með því að veita opinberum háskólum á Íslandi heimild til þess að hækka skrásetningargjaldið í 100.000 krónur, þvert á kosningaloforð flokks síns um að opinbert háskólanám eigi að vera gjaldfrjálst. Við það hækka þau vinirnir álögur á stúdenta um heilan þriðjung til þess eins að heildartekjur Háskóla Íslands geti aukist um 1%… eitt prósent. Í fjárlögum ársins 2026 bættist einmitt við 1% aðhaldskrafa á Háskóla Íslands. Að okkar mati liggur í augum uppi hverjum er ætlað að mæta þeirri kröfu.“

Segja veitingakostnað háan

Greinarhöfundar segja að undanfarin tvö ár hafi Háskólinn, af öllum ríkisstofnunum, eytt mestu á veitingastaðnum Jómfrúnni. Stofnunin eyði jafnframt miklu í kaffiveitingar og máltíðir almennt og væri nær að lækka þann kostnað en hækka skráningargjöld:

„En fyrst Háskólinn eyðir svona miklu á Jómfrúnni, hvað ætli hann eyði almennt miklu í máltíðir og kaffiveitingar? Svarið við því er tiltölulega einfalt að finna en samkvæmt opinberum reikningum ríkisins eyddi Háskóli Íslands heilum 123.175.227 krónum, í máltíðir og kaffiveitingar, árið 2025. Þessi upphæð er heil 37% af tekjuaukningu Háskólans vegna hækkunar skrásetningargjaldsins. Það þýðir einfaldlega það að 4927 nemendur greiða þessar rúmlega hundraðogtuttugu milljónir með hækkun skrásetningargjaldsins. Til samanburðar eru 3506 nemendur á Félagsvísindasviði, fjölmenntasta sviði Háskólans og karlkyns nemendur við HÍ eru 4501 talsins.“

Greinina í heild má lesa hér.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“