fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Á að tæma uppþvottavélina um leið og hún er búin?

Pressan
Sunnudaginn 22. febrúar 2026 16:30

Á að tæma hana um leið og hún er búin? Mynd:Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist nú ekki stórmál í hinum daglega erli hvort uppþvottavélin er tæmd um leið og hún lýkur þvottinum eða hvort það er látið bíða.

En rannsóknir hafa sýnt fram á að það skiptir máli varðandi hreingerningarstigið og líftíma vélarinnar hvenær þetta er gert.

Linternaute skýrir frá þessu og bendir á að flestir séu með ákveðna rútínu þegar kemur að uppþvottavélinni. Sumir opni hana um leið og hún er búin en aðrir láti hana kæla sig og enn aðrir bíði með að tæma hana því þeir nenni einfaldlega ekki að tæma hana strax.

En fagfólk bendir á að það skipti máli hvenær vélin er tæmd. Það skynsamlegast, að sögn fagfólks, er að opna vélina smávegis um leið og hún er búin að þvo. Þannig kemst heit gufan út og safnast því ekki upp sem raki í vélinni.

Með þessu þornar fyrr og jafnar í vélinni. Þessi litla loftræsting veldur því að óþefur og raki ná ekki að safnast fyrir.

Það er oft innilokaður raki sem veldur þungri lykt og jafnvel myglusveppi.

Margar nýlegar uppþvottavélar eru þannig hannaðar að þær opnast smávegis að þvotti loknum og tryggja þannig loftflæði.

Sérfræðingar segja að forðast eigi að láta vélina standa opna í langan tíma því þá geti ryk og öragnir endað inni í henni. Þeir segja að best sé að láta hana standa hálfopna í hálfa til eina klukkustund og taka úr henni á meðan og loka henni síðan. Þetta tryggi góð þrif og lengi líftíma vélarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu