fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Pínulítil smáatriði urðu til þess að 12 ára stúlku var bjargað úr klóm barnaníðings

Pressan
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 08:00

Greg Squire í myndinni. Mynd/BBC

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný heimildarmynd BBC, The Darkest Web, varpar ljósi á umfangsmikla og margra mánaða rannsókn bandarískra netrannsakenda sem leiddi til þess að 12 ára stúlku var bjargað úr klóm barnaníðings.

Í myndinni er rýnt í aðferðir sérfræðinga sem starfa innan bandaríska heimavarnarráðuneytisins (e. Homeland Security) og þær andlegu og siðferðislegu áskoranir sem fylgir þeirri vinnu að elta uppi skipulagða barnaníðinga á myrkranetinu (e. dark web).

Um er að ræða dulinn hluta Internetsins sem ekki er aðgengilegur með hefðbundnum leitarvélum. Hann er í raun hannaður til að fela slóð notenda sem gerir lögreglurannsóknir sérstaklega erfiðar.

Myndir í dreifingu árum saman

Í myndinni er fjallað um mál ungrar stúlku sem kölluð er Lucy til að vernda persónuupplýsingar hennar. Myndir og myndbönd af misnotkun stúlkunnar hafði verið í dreifingu meðal stórs hóps notenda myrkranetsins um árabil.

Rannsóknin var leidd af sérfræðingnum Greg Squire sem lýsir leitinni sem langvinnu púsluspili þar sem hvert smáatriði skipti máli. Í myndinni segir hann að teymið hafi í marga mánuði farið í gegnum efni sem fannst á netinu í von um að finna vísbendingar um staðsetningu barnsins.

„Það er erfitt að lýsa tilfinningunni þegar maður er stöðugt að leita að týndum bitum í púslið,“ segir Squire í heimildarmyndinni. „Þetta verður dagleg byrði. Þú berð ábyrgðina,“ segir hann.

Smáatriði skiptu öllu máli

Rannsakendur greindu meðal annars innstungur í veggjum sem leiddu í ljós að Lucy var einhvers staðar í Norður-Ameríku. Þá voru húsgögn og aðrir hversdagslegir hlutir skoðaðir sem sáust í bakgrunni mynda.

Með tímanum tókst að þrengja leitarsvæðið verulega þegar í ljós kom að sófi sem sást á nokkrum myndum var aðeins seldur á afmörkuðu landsvæði þar sem um 40.000 manns búa. Síðar vakti tiltekinn múrsteinsveggur athygli og með aðstoð sérfræðinga í byggingarefnum tókst að staðfesta framleiðslusvæði múrsteinanna. Um var að ræða stóra og þunga steina sem höfðu ekki verið fluttir langa vegalengd.

„Ég byrjaði einfaldlega að leita á netinu að mismunandi tegundum múrsteina,“ segir Squire í myndinni. Komst hann í samband við sérfræðinga sem gátu bent honum á nákvæma framleiðslutegund og þannig minnkað leitarsvæðið enn frekar.

Dæmdur í 70 ára fangelsi

Eftir að leitarsvæðið hafði verið þrengt niður og samfélagsmiðlar skoðaðir fundu rannsakendur loks mynd af stúlkunni sem staðfesti hvar hún var niðurkomin.

Í heimildarmyndinni kemur fram að Lucy hafi búið með móður sinni og kærasta hennar, manni sem hafði áður hlotið dóm fyrir kynferðisbrot. Hann hafði brotið kynferðislega á Lucy frá því að hún var aðeins sex ára gömul. Það er skemmst frá því að segja að stjúpfaðir hennar var handtekinn og síðar dæmdur í rúmlega 70 ára fangelsi.

Málið vakti ekki aðeins athygli vegna rannsóknaraðferðanna heldur einnig vegna þess andlega álags sem fylgir slíkri vinnu. Squire segir í myndinni að störf af þessu tagi geti haft djúpstæð áhrif á einkalíf og andlega heilsu rannsakenda. Hann er sjálfur faðir og segir hann að sú staðreynd hafi gert hann staðfastari í að leysa málið.

„Það er erfitt þegar það sem gefur manni mestan drifkraft er á sama tíma það sem getur eytt manni hægt og rólega,“ segir hann. „En það er líka heiður að vita að maður geti haft raunveruleg áhrif.“

Í heimildarmyndinni er einnig fjallað um hvernig svipuðum aðferðum sé beitt víðar, meðal annars í Bretlandi. Lögregluyfirvöld þar hafa í auknum mæli nýtt alþjóðlegt samstarf og tæknilausnir, þar á meðal gervigreind, til að bera kennsl á fórnarlömb og gerendur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“