
Héraðssaksóknari hefur ákært lögreglumann fyrir tvö brot í opinberu starfi. Meint brot voru framin sumarið 2025.
Annars vegar er lögreglumaðurinn sakaður um að hafa mánudaginn 21. júlí opnað útidyrahurð efri hæðar að tilteknu húsnæði, með lykli sem hann lagði hald á ólöglega, og farið inn án samþykkis eigenda eða leigutaka eða úrskurðar dómara, og þannig ekki gætt lögmætra aðferða við leit.
Í öðru lagi er lögreglumaðurinn sakaður um að hafa miðvikudaginn 23. júlí farið inn í tiltekna íbúð í fjölbýli án samþykkis eigenda eða úrskurðar dómara og hafið þar leit og þannig ekki gætt lögmætra aðferða við beitingu rannsóknaraðgerðar.
Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær, mánudaginn 16. febrúar. Réttarhöld í málinu eru lokuð.