fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

„Það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 07:26

Lúðvík Pétursson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grindavíkurnefnd hefur verið falið af dómsmálaráðuneytinu að finna verkfræðistofu, sem ekki hefur áður komið að málum í Grindavík, til að meta aðstæður í sprungu þar sem Lúðvík Pétursson lést þann 10. janúar 2024.

Þetta verður gert til að kanna hvort unnt sé að grafa upp jarðneskar leifar hans. Greint er frá þessu í Morgunblaðinu og þar er rætt við bróður Lúðvíks, Elías Pétursson, sem segir fjölskylduna fagna þessari ákvörðun.

„Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir hann við Morgunblaðið.

Í frétt blaðsins kemur fram að menn telji sig vita hvar jarðvegsþjöppuna, sem Lúðvík vann á þegar slysið varð, sé að finna. Telja menn líklegt að Lúðvík sé þar að finna nálægt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“