fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Jakob Snævar Ólafsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 17:30

Seltjarnarnes. Mynd: Seltjarnarnes.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona hefur verið sakfelld fyrir líkamsárás gegn fyrrverandi sambýlismanni sínum en fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur að konan hafi glímt við mikla vanlíðan eftir að slitnaði upp úr sambandinu.

Árásin átti sér stað í ágúst 2024 innandyra á Seltjarnarnesi. Konan var ákærð fyrir líkamsárás með því að sparka ítrekað í fótlegg mannsins með þeim afleiðingum að hann hlaut yfirborðsáverka. Upphaflega var konan einnig ákærð fyrir að kýla manninn með krepptum hnefa í andlitið en embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sem fór með ákæruvaldið í þessu tilfelli, féll frá þeim ákærulið við þingfestingu málsins.

Konan játaði brot sitt skýlaust. Hún hafði ekki gerst sek áður um refisverða háttsemi. Héraðsdómur mat henni það til refisþyngingar að fyrrverandi sambýlismaður hennar hlaut líkamstjón en á móti var horft til játningar hennar og þess að hún lýsti yfir iðrun. Lagði konan fram vottorð sálfræðings um að hún hefði leitað sér aðstoðar vegna vanlíðanar í tengslum við sambandsslitin og samskiptanna við fyrrverandi sambýlismanninn sem fylgt hafa í kjölfarið.

Í ljósi alls þessa þótti við hæfi að dæma konuna í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar