fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Útilokar ekki að Tonali fari og segir að málið verði skoðað í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Giuseppe Riso, umboðsmaður Sandro Tonali, segir að ákvörðun um framtíð ítalska miðjumannsins verði tekin í sumar.

Í viðtali við ítalska miðilinn Tuttosport sagði Riso að Newcastle ætti erfitt með að hugsa sér að missa Tonali og að leikmaðurinn sjálfur vilji hjálpa félaginu að ná sæti í Meistaradeildinni.

Hann tók fram að félagaskiptamál yrðu rædd síðar og að staðan yrði metin þegar tímabilinu lýkur.

Riso sagði enga sérstaka ósk vera uppi um næsta áfangastað og að staðan í dag gæti breyst hratt. Að hans mati væri engin ástæða til að hreyfa við málum núna, sérstaklega þar sem Tonali sé mjög tengdur félaginu og líði vel hjá Newcastle.

Umboðsmaðurinn bætti við að allt yrði metið í sumar og þá tekin ákvörðun um næstu skref.

Fyrr í vikunni hafnaði Riso einnig sögusögnum um að hann hefði boðið Tonali til Arsenal fyrir lok félagaskiptagluggans. Hann segir þær fréttir ekki eiga við rök að styðjast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið