fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vilja fyrirliða Tottenham sem hefur látið félagið heyra það

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristian Romero er aftur kominn á óskalista Atletico Madrid eftir nýlega óánægju hans hjá Tottenham Hotspur.

Atlético hafði mikinn áhuga á argentínska miðverðinum síðasta sumar en gat þá ekki fjármagnað kaup. Romero skrifaði í kjölfarið undir nýjan samning við Tottenham og var síðar gerður að fyrirliða af knattspyrnustjóranum Thomas Frank.

Undanfarið hefur Romero þó vakið athygli fyrir færslur á samfélagsmiðlum sem túlkaðar hafa verið sem gagnrýni á stjórn félagsins. Það hefur skapað Frank höfuðverk, enda kemur þetta á viðkvæmum tíma.

Samkvæmt erlendum miðlum er Atlético að leita að nýjum miðverði fyrir næsta tímabil og gæti reynt aftur við Romero ef hann verður fáanlegur í sumar.

Óvíst er þó hvort Tottenham sé tilbúið að selja. Félagið batt hann nýlega til fjögurra ára í samningi sem talið er að sé yfir 200 þúsund pund á viku.

Staðan gæti því ráðist af vilja leikmannsins og hvernig samskipti hans við félagið þróast á næstu mánuðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð