fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gísli sagði upp starfi sem hann elskaði til að geta hjálpað Lucy Letby – „Ég færði fórn í góðri trú og sagði upp“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gísli Guðjónsson, einn helsti sérfræðingur heims á sviði réttarsálfræði og falskra játninga, sagði upp starfi sínu sem sérfræðiráðgjafi hjá bresku rannsóknarlögreglustofnuninni National Crime Agency (NCA).

Þetta gerði Gísli til að geta borið vitni um að handskrifaðar glósur breska hjúkrunarfræðingsins Lucy Letby fælu ekki í sér játningu á sekt.

Lucy var árið 2023 dæmd í margfalt lífstíðarfangelsi fyrir morð á sjö nýburum og tilraun til að drepa sjö til viðbótar á Countess of Chester-sjúkrahúsinu árin 2015 og 2016. Hefur mál hennar vakið mikla athygli á Bretlandseyjum á undanförnum árum.

Letby var meðal annars sakfelld á grundvelli handskrifaðra bréfa sem fundust á heimili hennar. Á þeim virtist hún gefa í skyn að hún væri sek í málinu, en aðrir sambærilegir miðar bentu hins vegar til sakleysis hennar.

Bréfin túlkuð sem játning

Greint var frá því í fyrrahaust að Gísli hefði efasemdir um þessi handskrifuðu bréf. Kom það bæði fram í umfjöllun Sunday Times og í viðtali Morgunblaðsins við Gísla.

„Hún hafði verið að skrifa þessar nótur vegna þess að henni leið illa og þar hafði hún uppi ýmsar sjálfsásakanir,“ sagði Gísli við Morgunblaðið og bætti við að saksóknari hefði notað bréfin sem játningar fyrir dómi og aldrei hafi verið sett út á það.

Nú greinir breska blaðið The Sun frá því að Gísli hafi ákveðið að segja upp störfum hjá NCA til að geta borið vitni um handskrifuðu bréfin. Telur hann að ekki eigi að líta á glósurnar sem játningu.

„Ég varð að segja upp til að réttlætið næði fram að ganga – það var í þágu réttlætis og sanngirni. Ég hafði þegar hitt Lucy og áttaði mig síðar á því að mögulegur hagsmunaárekstur væri til staðar vegna hlutverks míns hjá NCA. Ég vissi ekki að stofnunin hefði komið að málinu, þannig að ég þurfti að ákveða hvort ég ætti að draga mig út úr málinu eða segja upp starfi sem ég elskaði. Ég gat ekki dregið mig til baka, því í máli á Norður-Írlandi hafði ég áður neitað að skrifa skýrslu og það var rangtúlkað sem sönnun um sekt. Ég óttaðist að það sama gæti gerst hér. Svo ég stóð frammi fyrir vali: að segja upp starfi sem ég elskaði eða hætta á að skaða málið. Ég gat ekki tekið þá áhættu. Ég færði fórn í góðri trú og sagði upp. Ég sé ekki eftir því, þó mér þyki það leitt því ég elskaði starfið og samstarfsfólkið.“

„Þess vegna er þetta ekki játning“

Gísli segist í viðtali við The Sun hafa sannfærst um að glósurnar jafngiltu ekki játningu eftir að hafa hitt Lucy. „Játning krefst útskýringa á því hvers vegna og hvernig en það er ekki til staðar hér,” segir hann og bætir við að ekkert í handskrifuðu bréfunum bendi til þess að hún hafi haft ásetning um að verða börnunum að bana.

„Þetta snýst um sjálfsásökun en ekki ásetning um að drepa börn […] Þetta snýst um tilfinningu hennar um að hún hafi ekki verið nógu góð og að börnin hafi dáið vegna þess að hún var ekki nógu hæf sem hjúkrunarfræðingur eða í starfi sínu. Þannig les ég þetta.”

Bendir Gísli á að Lucy hafi einnig skrifað glósur þar sem hún einmitt sagðist „ekki vera nógu góð” og að hún „hataði sjálfa sig”.

„Þú getur ekki tekið „ég er morðingi“ sem staðreyndajátningu. Ef hún hefði skrifað „ég myrti þessi börn, þetta er ástæðan og svona gerði ég það“, þá væri það annað mál. En ekkert slíkt er til staðar. Það er engin útskýring á hvers vegna eða hvernig. Þess vegna er þetta ekki játning. Þetta er viðurkenning á því að henni líður eins og hún sé vond, en ekki játning.”

Í frétt The Sun segir að sjónarmið Gísla um glósur Letby gætu orðið lykilatriði í vörn hennar verði málinu vísað aftur til endurupptökunefndar sakamála í Bretlandi (CCRC).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump