

Guðjón Guðmundsson, Gaupi, segist yfirleitt ekki ræða við son sinn, handboltalandsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson, á leikdegi. „Og þegar liðið er valið og hann er að velta þessu fyrir sér, þá skipti ég mér ekkert að því. Ég svona heyri í honum oftar en ekki bara eftir leiki, ef tækifæri er til þá ræðum við um þetta bara mjög almennt, en ég er ekki maður sem liggur í honum: af hverju ertu að velja þennan? Þessi getur ekkert, og svo framvegis, það bara geri ég ekki, ég var í þessu sjálfur átta ár,“ segir Gaupi sem varð landsþekktur í hlutverki aðstoðarmanns landsliðsþjálfarans Bogdan Kowalczyk, Pólverjans sem koma íslenska landsliðinu í fremstu röð á sínum tíma. Eftir það tók við áratugalangur, glæstur ferill í fjölmiðlum.
Gaupi fór yfir málin í viðtali við Bylgjuna í morgun. Gaupi var í höllinni í Malmö í gær þegar Ísland vann stórsigur á Slóveníu og tryggði sig inn í undanúrslitin. „Já, þetta er stórkostlegur árangur hjá liðinu og bara teyminu öllu eins og það leggur sig,“ sagði hann um árangur liðsins.
Gaupi benti á að það tekur tíma að móta lið í fremstu röð. „Þetta er auðvitað búið að taka þá smátíma. Þeir tóku við fyrir hvað, tæplega þremur árum eða þremur árum í sumar. Og það tók Snorra þrjú ár að búa til lið hjá Val sem var svona samkeppnishæft, samkeppnishæft á evrópskan mælikvarða. Hvað er þetta? Og ég sagði að þetta myndi taka jafnlangan tíma með landsliðið. Þið eruð komnir með það og þeir eru komnir á skrið með það og þessi árangur undirstrikar að þeir eru á réttri leið.“
Í viðtalinu kom fram að það getur tekið á taugarnar fyrir foreldra landsliðsþjálfarans að fylgjast með liðinu og umræðunni sem sprettur upp í kringum leikina. „Sko, mér finnst svona á umfjölluninni allri, til að mynda heima, mér finnst nú sérfræðingarnir, þeir fara fyrst á taugum yfir yfir frammistöðunni. Ég er búinn að sjá alla leiki íslenska liðsins. Til að mynda í leiknum gegn Króatíu, þá vorum við frábærir í síðari hálfleik. Og svo hitti maður kollega sína, fréttamenn sem að eru að fjalla um þetta og þjálfara. Og þá töluðu menn um það að in-game management, svo ég sletti, hafi verið frábært hjá Íslandi í leiknum á móti Króatíu. Svo þá fór maður í gegnum íslensku miðlana og þá las maður eitthvað allt annað.“
Gaupi var spurður hvort hann horfði á landsleikina sem sérfræðingur eða faðir.
„Sko, ég er eiginlega bæði, sérfræðingur og faðir. Sko, sem faðir þá er þetta nú eiginlega bara mikil þjáning og ég hef nú stundum sagt, að ég verði þeirri stund guðs lifandi feginn þegar að drengurinn hættir og einhver annar tekur við og þá getur maður bara farið að gagnrýna þetta nákvæmlega eins og hinir.“
Hann sagði að hann væri samt ekki í erfiðri stöðu heldur í skemmtilegri stöðu. „Ég er nú búinn að fylgjast með handbolta nánast á hverjum degi í 56 ár, frá því að Íslendingar unnu Dani 1968, 15-10. Ég hef bara ekkert verið laus við þá bakteríu.“
Gaupi segir að Danmörk sé með besta handboltalandslið í heimi. Strákarnir okkar eigi samt möguleika gegn þeim í undanúrslitunum, enda leiki liðin svipaðan handbolta. Auðvitað fari maður í alla leiki til að vinna. „Ég er alveg sannfærður um að þjálfari Dana, Nikolaj Jacobsen, honum finnst Ísland ekkert þægilegur andstæðingur. Ég er algjörlega klár á því.“
Viðtalið má heyra hér.