fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ellefu úr sömu fjölskyldunni teknir af lífi

Pressan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 07:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellefu einstaklingar sem tilheyrðu kínversku Ming-glæpafjölskyldunni voru teknir af lífi í Kína í gær. Hópurinn var dæmdur fyrir umfangsmikla svikastarfsemi, morð og aðra glæpi í Mjanmar.

Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu. Dauðadómarnir voru kveðnir upp í lok september á síðasta ári.

Alls voru 39 dæmdir í málinu og hlutu ellefu lífstíðarfangelsi auk þeirra ellefu sem hlutu dauðadóm. Hinir fengu fangelsisdóm frá 5 árum til 24 ára.

Ming-fjölskyldan er sögð hafa unnið fyrir eina af fjórum ættum sem fóru með völd í landamærabænum Laukkaing í Mjanmar, skammt frá landamærum Kína. Var bænum breytt í einskonar miðstöð fjárhættuspila og eiturlyfja. Mátti þar einnig finna tölvuver sem nýtt voru undir ýmsa svikastarfsemi.

Talið er að Ming-fjölskyldan hafi haft gríðarlega fjármuni upp úr krafsinu frá árinu 2015, eða 10 milljarða júana sem jafngildir um 150 milljörðum króna.

Yfirvöld í Mjanmar fóru í rassíu árið 2023 og voru meðlimir fjölskyldunnar framseldir til Kína í kjölfarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu