fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Nýjar upplýsingar um heilsu Michaels Schumacher koma fram

Pressan
Mánudaginn 26. janúar 2026 13:30

Michael Schumacher.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúm tólf ár eru nú liðin frá því að Michael Schumacher, einn sigursælasti ökumaður í sögu Formúlu 1, slasaðist alvarlega í skíðaslysi í frönsku Ölpunum.

Síðan þá hefur fátt verið gert opinbert um heilsufar hans, að ósk eiginkonu Schumachers, Corinnu, sem hefur staðið vörð um friðhelgi eiginmanns síns allt frá þessum örlagaríka degi í lok árs 2013. Ný umfjöllun breska blaðsins Daily Mail varpar þó ljósi á stöðu hans í dag.

Samkvæmt heimildum blaðsins dvelur Schumacher reglulega í 30 milljóna punda glæsivillu fjölskyldunnar á Mallorca, en hann býr þó aðallega í Sviss. Þar er hann undir stöðugri umönnun lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraþjálfara.

Þótt hann sé ekki rúmfastur, eins og stundum hefur verið haldið fram, getur hann ekki gengið og er færður á milli staða í hjólastól.

Sögusagnir hafa gengið um að Schumacher þjáist af svokölluðu „locked-in syndrome“, þar sem einstaklingur er með fulla meðvitund en getur ekki tjáð sig nema með því að nota augun.

Heimildir blaðsins draga þá mynd þó í efa. Aðstandendur telja óljóst hversu mikið Schumacher skilur af því sem gerist í kringum hann. „Maður getur ekki verið viss um hvað hann skilur, því hann getur ekki sagt neitt,“ er haft eftir einum heimildarmanni.

Mjög fáir utan fjölskyldunnar fá að hitta Schumacher. Í hópi þeirra sem njóta trausts til að koma inn á heimili fjölskyldunnar er Jean Todt, fyrrverandi liðsstjóri Ferrari, sem hefur sagt að vinur hans „berjist áfram“, án þess þó að greina nánar frá heilsufari hans.

Engar myndir hafa birst af Schumacher frá slysinu og allar tilraunir til að leka upplýsingum eða gögnum um heilsu hans hafa verið stöðvaðar af hörku. Þrír menn voru nýverið dæmdir fyrir tilraun til fjárkúgunar með stolnum myndum og læknisgögnum.

Þrátt fyrir alvarlega stöðu Michaels Schumacher heldur fjölskyldan áfram lífinu. Sonur hans, Mick Schumacher, reynir nú fyrir sér í bandarísku IndyCar-mótaseríunni, en hefur, líkt og aðrir í fjölskyldunni, kosið að tjá sig ekki um heilsu föður síns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér