fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Launum hins umdeilda Infantino lekið – Þetta þénar hann hjá FIFA

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 08:30

Infantino forseti FIFA / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laun Gianni Infantino forseta FIFA hafa lekið út í nýjum skjölum sem birt hafa verið á netinu og vakið talsverða athygli í knattspyrnuheiminum.

Infantino tók við embætti forseta FIFA í febrúar 2016 eftir brotthvarf Sepp Blatter og hefur nú setið í tæpan áratug. Síðar á þessu ári mun hann halda utan um sitt þriðja HM karla þegar mótið fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

Samkvæmt bandarískum skattaskjölum sem franska blaðið Le Monde hefur undir höndum hóf Infantino störf hjá FIFA með árslaun upp á 1,28 milljónir evra. Árið 2024 voru heildarlaun hans komin í um 5,27 milljónir evra á ári.

Grunnlaun hans eru sögð vera tæpar 2,5 milljónir evra, auk um 1,5 milljóna í bónusa. Þá fær hann um 950 þúsund evrur í aðrar skattskyldar greiðslur og rúmlega 130 þúsund evrur í lífeyrisframlag. Eftir HM 2022 fékk hann bónus upp á 1,77 milljónir evra og eftir endurkjör sitt árið 2023 hækkuðu laun hans um 2,7 milljónir evra.

Núverandi laun Infantino eru ekki opinber, en talið er að þau muni hækka enn frekar með tilkomu HM félagsliða og HM 2026 í Bandaríkjunum.

Áður hafa einnig komið fram upplýsingar um umdeildan persónulegan kostnað, þar á meðal tæpar 9 þúsund pund fyrir dýnur, rúm 6 þúsund pund fyrir æfingatæki og yfir þúsund pund fyrir smóking.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“