fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Stoltur af sinni fyrrverandi og lætur sjaldgæfa athugasemd falla

Pressan
Laugardaginn 17. janúar 2026 14:30

Ashton Kutcher

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Ashton Kutcher hrósar fyrrverandi eiginkonu sinni, Demi Moore, 15 árum eftir að þau skildu. 

Leikarinn var að kynna nýju FX-þáttaröð sína, The Beauty, þegar hann var spurður út í verkefnið og samanburð við kvikmynd Moore frá 2024, The Substance. Mynd Demi hlaut lof gagnrýnenda.

„Ég meina, í fyrsta lagi, frammistaða Demi í The Substanc’, hún fékk augljóslega ótrúlega viðurkenningu, ég er svo stoltur af henni, hún negldi þetta alveg,“ sagði Kutcher við Entertainment Tonight.

„Ég held að stærra samhengið sé þó að við erum í samfélagi þar sem aðgerðir eru að verða sífellt ríkjandi ogviðurkenndar,“ hélt hann áfram. „Það er skrýtið, eins og á síðustu tveimur áratugum horfir maður bara á þetta aukast.“

Í myndinni The Beauty eftir Ryan Murphy leikur Kutcher skapara lyfs sem gerir fólk ótrúlega fallegt en hefur banvænar aukaverkanir. Í The Substanc  leikur Moore fræga konu sem notar svartamarkaðslyf til að skapa yngri útgáfu af sjálfri sér með óvæntum aukaverkunum. Moore vann Golden Globe verðlaun, Critics Choice verðlaun og Screen Actors Guild (SAG) verðlaun fyrir leik sinn í myndinni.

Kutcher (47) og Moore (63) byrjuðu saman árið 2003 og giftu sig í september 2005. Þau slitu sambandi árið 2011 eftir sex ára hjónaband og skilnaður þeirra var staðfestur árið 2013.

Áratug síðar viðurkenndi Kutcher að hann væri pirraður út í Moore vegna endurminninga hennar frá árinu 2019, Inside Out. Í bók sinni sagði Moore að hún sæi eftir tveimur þríeykissamböndum sem hún og leikarinn áttu í og sakaði hann einnig um að hafa haft áhrif á hana til að slíta edrúmennsku sinni í næstum 20 ár.

„Ég var loksins kominn á þann stað þar sem fjölmiðlarnir höfðu misst áhugann á mér og konu minni Milu Kunis og lífi mínu og fjölskyldu minni,“ sagði Kutcher við Esquire. „Og svo daginn eftir voru ljósmyndararnir í skóla barnanna minna,“ hélt hann áfram og vísaði til dótturinnar Wyatt, sem nú er 11 ára, og sonarins Dimitri, sem nú er níu ára.

Ástarsamband Kutcher og Moore vakti mikla athygli vegna 15 ára aldursmunar þeirra. Leikarinn varð einnig stjúpfaðir þriggja barna Moore með fyrrverandi eiginmanni hennar Bruce Willis: Rumer, 37 ára, Scout, 34 ára, og Tallulah, 31 árs.

Hjónin fyrrverandi ásamt dætrum Moore og Willis.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér