fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Erla Björg ritstjóri fréttastofu Sýnar segir upp

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 16. janúar 2026 10:37

Erla Björg Gunnarsdóttir. Mynd: Vilhelm Gunnarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofu Sýnar hefur sagt upp störfum eftir að hafa stöðunni í hálft fimmta ár og starfað hjá fréttastofunni í alls 13 ár. Erla Björg greindi í morgun frá ákvörðun sinni. Formleg starfslok hafa ekki farið fram en Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri mun taka við stjórnartaumum fréttastofunnar frá og með deginum í dag, eins og segir í frétt Vísis.

„Það hefur verið einstakt að vera hluti af þessum magnaða hópi sem er á fréttagólfinu, að fá að sjá fólk vaxa og dafna í starfi sínu, takast á við erfið mál með samheldni að vopni og fagna saman litlum og stórum sigrum. Því fylgir ótrúlegur kraftur sem hefur fleytt mér í gegnum ótal áskoranir í rekstri fréttastofunnar sem tekur sífelldum breytingum í takt við breytingar í yfirstjórn og stefnu félagsins. Nú er aftur á móti kominn tími til að annar taki við keflinu en ég mun alltaf búa að þessum krafti og tek hann með mér inn í næsta óskrifaða kafla,“ segir Erla Björg.

„Það verða mikil viðbrigði að hitta ekki Erlu daglega á fréttagólfinu en nú er komið að tímamótum. Fréttastofan er skipuð afar öflugu fólki sem mun halda áfram að gera það sem það gerir best. Að flytja fólkinu í landinu traustar fréttir alla daga ársins,“ segir Kolbeinn Tumi, sem varð fréttastjóri Vísis árið 2014 og fréttastofunnar allrar árið 2021, á sama tíma og Erla Björg tók við stöðu ritstjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“