fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fiskikóngurinn svarar fyrir sig: „Ég er ekki að fara að bjarga heiminum, eins og svo margir sem hafa hraunað yfir mig“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 18:00

Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fiskikóngurinn, Kristján Berg, er vanur að tala tæpitungulaust, bæði í eigin persónu og í færslum sínum á Facebook sem alla jafna vekja mikla athygli.

Í þeirri nýjustu siðar hann til fá einstaklinga sem reyna af öllum sínum kröftum að stjórna öðrum, segir Kristján slíka einstaklinga mega halda áfram „að pissa uppí vindinn með því að reyna að öskra á mig.“ Þetta hafi engin áhrif á hann.

Skrifin má rekja til þess að Kristján fékk sér derhúfu með áletruninni Make Ísland Great Again, sem styttist skemmtilega eða ekki í MÍGA, í takt við yfirskrift færslu Fiskikóngsins. Derhúfunni svipar til húfu Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem er með áletruninni Make America Great Again og fékk Kristján bágt fyrir sína húfu að eigin sögn:

„Ótrúlegir dagar að baki. Það eru nokkrir virkilega veikir einstaklingar þarna úti í samfélaginum sem eru með „Trump syndróm“ , á verulega hættulegu stigi.“

Fiskikóngurinn með derhúfuna. Mynd: Facebook.

Sjá einnig: Fiskikóngurinn lenti í óvenjulegu atviki í gær: „Rífur í öxlina á manni sínum og segist ekki versla hér“

Segist Kristján hafa fengið derhúfuna gefins, fundist hún töff og það bara á eigin höfði. Allt hafi orðið vitlaust í kjölfarið.

„Þegar ég segi kreysi, þá eru þetta nokkrir tugir einstaklinga, að mestu leyti konur frá 25-45 ára, sem missa sig alveg útí hið óendanlega. Það er strax farið í að níða mig niður. Rasisti og önnur ógeðsleg orð eru notuð um mig og mína. Ég ætla ekki einu sinni að eyða orku minni í að reyna að verja mig, þetta er komið á það stig að þessu er ekki svaravert.

Þessir veiku Trump synt róm einstaklingar þurfa að fá útrás og reyna hvað þeir geta til þess að rífast við mig. Því miður þá geta þeir frekar reynt að pissa upp í vindinn, þetta hefur ekki áhrif á mig.“

Segir hann að ekkert hafi komið fram um Trump á derhúfu Kristján, en vissulega séu þær í sama stíl.

„En hver hefur ekki stolið einhverri hugmynd og breytt henni að einhverju leyti ?
Það gerist daglega. Hönnun húsa, húsgagna, auglýsingar eru stælltar og svo mætti lengi telja.

Ég ætla samt að viðurkenna að ég fýla Trump, mér finnst hann fyndinn, gaman að fylgjast með honum, dansinn hans er hrikalega flottur og svo mætti lengi telja. Ég er samt ekki að rýna djúpt ofaní hvað hann gerir dags daglega, tek bara frá honum það sem mér finnst fyndið og skemmtilegt…….er það bannað? Þú mátt alveg gagnrýna mig fyrir það.“

Kristján segist reyna að vera alltaf léttur og honum finnist gaman að lífinu.

„Ég er ekki að fara að bjarga heiminum, eins og svo margir sem hafa hraunað yfir mig.
Þið Trump syndróm fólk, þið getið bara verið í þeim björgunaraðgerðum, enda eruð þið háværasta, dónalegasta og leiðinlegasta fólkið sem ég hef heyrt í. Ég ætla bara að halda áfram að lifa mínu lífi, án þess að þið fáið að stjórna hvað ég segi, hvernig ég klæðist og hvernig ég ver mínum degi. Ef þið þolið ekki Trump, þá notið frekar krafta ykkar til þess að skrifa honum bréf og tjá ykkur. Þið haldið bara áfram að pissa uppí vindinn með því að reyna að öskra á mig.“

Segist Kristján hafa fengið þvílíkan meðbyr og það séu fleiri íbúar landsins í lagi andlega.

„Ég er fullorðinn sjálfstæður einstaklingur sem á sjálfur fæði, klæði og húsnæði.

Þetta er spurning um að þora að standa í lappirnar og láta ekki bugast undan þessu fólki sem reynir af öllum krafti að stjórna þér, með ógeðslegum orðum, hótunum og ofbeldi. Þetta fólk þarf hjálp.“

Birtir hann myndir af fjórum derhúfum, Bandaríkjaforseta, sinni og tveimur öðrum.

„Hinar eru það ekki [Trump húfa], þannig að hvernig er hægt að segja að þær eru það?
Þær eru að vísu svipaðar, en koma hvorki frá USA eða Trump.“

Bendir Kristján að lokum á að ef einhverjir hafi áhuga á húfu líkt og hans séu þær til sölu í verslun hans Heitir pottar á Fosshálsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump