fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Reyndi að fara með látna eiginkonu sína í flug á Tenerife

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 14:30

Frá Tenerife.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áttræður maður hefur verið handtekinn eftir að hann reyndi að fara með látna eiginkonu sína um borð í flugvél á flugvellinum á Tenerife.

Canarian Weekly greinir frá þessu.

Upp komst um athæfið við öryggisleitarhliðið. Eiginmaðurinn ók konu sinni í hjólastóli og ekkert virtist athugavert. En öryggisvörður veitti því athygli að konan sýndi engin viðbrögð. Er hann snerti hendi hennar fann hann að hún var köld og konan ekki með lífsmarki.

Öryggisverðir þustu á vettvang og handtóku manninnn. Sagði maðurinn að kona hans hefði látist aðeins nokkrum klukkustundum áður, líklega inni á flugvellinum.

Maðurinn hefur verið samvinnuþýður við lögreglu við rannsókn málsins en unnið er að því að greina dánarorsök konunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu