
Jude Bellingham hafnar alfarið fréttum um að samband hans við fyrrverandi stjóra Real Madrid, Xabi Alonso, hafi verið slæmt og gagnrýnir fjölmiðla fyrir rangfærslur.
Eftir tap Real Madrid gegn Barcelona í úrslitum spænska ofurbikarsins í Sádi-Arabíu var brotthvarf Alonso staðfest. Spánverjinn var aðeins sjö mánuði í starfi og var undir mikilli pressu allan tímann.
Í kjölfarið birtust fréttir um óánægju í klefanum og að Alonso hefði til að mynda átt stirt samband við Bellingham.
Enska stjarnan svaraði þessum sögusögnum á samfélagsmiðlum „Þar til nú hef ég aldrei brugðist við svona sögusögnum í von um að sannleikurinn kæmi í ljós. En þetta er bara bull,“ skrifaði Bellingham.
Bellingham deildi jafnframt færslu sem vísaði í umfjöllun The Athletic sem sagði ekkert benda til slæms sambands hans og Alonso.