

Diogo Dalot, bakvörður Manchester United, hefur fengið mikla gagnrýni fyrir framgöngu sína síðustu vikur.
Dalot hefur verið slakur eins og margir á Old Trafford á þessu tímabili.
Dalot átti slakan leik gegn Brighton í bikarnum í gær þegar United féll úr leik strax í fyrsta leik sínum.
United tapaði 2-1 í gær en í einu marka Brighton var Dalot í talsverðu bulli, hann var langt frá því sem var að gerast og þegar fyrirgjöfin kom inn virtist Dalot vera að horfa upp í stúku.
Hafa stuðningsmenn United gagnrýnt þetta harðlega.