

Fjallað er um þetta á vef Skagafrétta þar sem haft er eftir Ólafi að hann sé að velta fyrir sér hvað hann eigi að gera við restina af lífinu.
„Allt mitt fólk er flutt frá Akranesi til Reykjavíkur og þau eru að ýta á mig að flytja líka. Ég var í 3 ár öllum stundum að gera upp þetta hús sem mér finnst dásamlegt að búa í. Ef ég flyt þá þá vildi ég skoða þá möguleika sem eru í stöðunni á flutningi á húsinu. Það er alltaf verið að flytja svona hús,” segir Ólafur meðal annars við Skagafréttir.
Húsið sem um ræðir var byggt árið 1910 en hann keypti það árið 2014 og var það í slæmu ástandi. Hann tók húsið rækilega í gegn og er mikil prýði af því í bænum eftir framkvæmdirnar.
Í frétt Skagafrétta kemur fram að í fyrirspurn Ólafs hafi verið spurt hvort skipulagsleg eða lagaleg atriði kæmu í veg fyrir að hann gæti flutt húsið á brott.
Í svarinu kemur fram að húsið falli undir svokallaða hverfisvernd sem þýðir að ekki er hægt að breyta, fjarlægja eða rífa núverandi húsnæði af lóðinni nema með breytingu á deiliskipulagi.