fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Kristín ómyrk í máli: „Reykjavíkurborg þarf að hysja upp um sig“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. janúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Börnin okkar eiga betra skilið,“ segir Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, foreldrafræðingur og uppeldisráðgjafi, í aðsendri grein á vef Vísis.

Þar gerir hún svokallaða Afleysingastofu hjá Reykjavíkurborg að umtalsefni, en fjallað var um hana í fréttum RÚV í vikunni.

Lóa Birna Birgisdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar, sagði í frétt RÚV í gær að hugsunin sé með Afleysingastofu sé að hún leysi vanda einstakra starfsstöðva sem glíma við manneklu. Var fjallað um Afleysingastofu í samhengi við aðstæður foreldra barna á leikskólanum Funaborg í Grafarvogi sem þurfa að vera heima einn og hálfan dag í viku vegna manneklu.

Aum viðbrögð

Í grein sinni segir Kristín að mannekluvandi leikskóla borgarinnar hafi verið viðvarandi í fjölda ára.

„Viðbrögð borgarinnar við vandanum eru afskaplega aum en innan borgarinnar er starfandi svokölluð afleysingastofa með starfsfólk sem stekkur inn í þau störf sem þarf að leysa. Þetta kann að virðast skynsamleg skammtímalausn en er í raun plástur á djúpt kerfislegt vandamál,“ segir hún.

Kristín segir að staðreyndin sé sú að lokanir á leikskóla vegna manneklu séu tífalt fleiri í Reykjavík en hjá nágrannasveitarfélögum.

„Það eitt og sér bendir til þess að vandinn liggi ekki í ytri aðstæðum heldur í stjórnun, forgangsröðun og starfsumhverfi innan borgarinnar sjálfrar. Þegar slíkur munur blasir við er óábyrgt að líta framhjá rót vandans og einblína þess í stað á bráðabirgðalausnir,“ segir hún í grein sinni.

Skapar óöryggi og rýrir traust

Hún bendir á að þeir sem leysa af séu að jafnaði einstaklingar sem börnin þekkja ekki. Og fyrir ung börn skipti öryggi, stöðugleiki og tengslamyndun gríðarlega miklu máli. „Að fá sífellt nýjar manneskjur inn í sitt daglega umhverfi skapar óöryggi og rýrir traust og það á stað þar sem börn eiga að upplifa öryggi, festu og umhyggju.“

Hún segir að leikskólinn sé fyrsta skólastigið, ekki geymsla eða gæsla, og þar fari fram faglegt uppeldis- og menntunarstarf sem krefst þekkingar, reynslu og tengsla. „Þegar brugðist er við manneklu með afleysingum er verið að draga úr mikilvægi þessa starfs og vanmeta bæði börnin og það fagfólk sem þar starfar.“

Kristín endar grein sína á að senda borginni skýr skilaboð.

„Reykjavíkurborg þarf að hysja upp um sig. Lausnin felst ekki í endalausum plástrum heldur í því að gera starf á leikskóla að raunverulega eftirsóknarverðum starfsvettvangi: bæta kjör, starfsumhverfi og hlúa að fagmennsku þess frábæra fólks sem velur að sinna okkar allra minnstu. Ef þetta er hægt í öðrum sveitarfélögum hvers vegna ekki hjá Reykjavíkurborg? Börnin okkar eiga betra skilið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“