fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Stuðningsmenn hjóla í Slot fyrir þessar ákvarðanir í gær

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 2. janúar 2026 08:20

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Liverpool létu Arne Slot margir hverjir heyra það á samfélagsmiðlum eftir markalaust jafntefli gegn Leeds á Anfield í gær.

Liverpool stýrði leiknum en tókst ekki að brjóta niður skipulagða vörn Leeds. Besta færið í fyrri hálfleik fékk Hugo Ekitike þegar hann skallaði yfir markið úr góðu færi eftir fyrirgjöf frá Jeremie Frimpong.

Í seinni hálfleik reyndi Slot að hrista leikinn upp með skiptingum. Florian Wirtz, sem var keyptur á yfir 100 milljónir punda í sumar, fór af velli á 66. mínútu og inn komu Cody Gakpo, Alexis Mac Allister og Milos Kerkez. Skiptingarnar vöktu hins vegar mikla óánægju meðal stuðningsmanna.

Gakpo þótti gera lítið og margir gagnrýndu að Federico Chiesa og ungi kantmaðurinn Rio Ngumoha hefðu ekki fengið tækifæri fyrr. „Slot tekur Wirtz út af þegar við þurfum mark, algjörlega ráðvilltur,“ skrifaði einn stuðningsmaður. Annar sagði meðferð Slot á Chiesa skammarlega.

Úrslitin þýða að Liverpool er í fjórða sæti, 12 stigum frá toppliði Arsenal, eftir leiki umferðarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Í gær

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United
433Sport
Í gær

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“