fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Kaupsýslumenn frá Bandaríkjunum reyna að bjarga gjaldþrota félagi

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 6. desember 2025 12:00

Úr leik frá Sheffield. Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt heimildum Daily Mail hafa tveir bandarískir fjárfestahópar, sem báru áður áhuga á að kaupa Sheffield Wednesday, sameinað krafta sína og lagt fram sameiginlegt tilboð.

Milljarðamæringurinn John McEvoy hefur tekið höndum saman við Storch-fjölskylduna, sem áður var tengd við kaup á Plymouth Argyle, eftir að báðir aðilar höfðu upphaflega skilað inn sitt hvoru boðinu.

Að auki hefur nýtt tilboð borist frá ónefndum aðila, en baráttan um að taka við félaginu heldur áfram.

Umsjónarmenn söluferlisins vonuðust til að tilnefna kjörinn kaupanda fyrir föstudag, en tímalínan hefur verið framlengd.

McEvoy á hlut í MLB-félaginu Colorado Rockies og NHL-liðinu Nashville Predators og hefur áður verið orðaður við kaup á Coventry City.

Talið er að hann hafi haft samband við tónlistarmanninn Jon McClure, stuðningsmann Wednesday og söngvara Reverend and the Makers, til að spyrjast fyrir um stöðu félagsins.

McEvoy á minnihlutahlut í Various Artists, umboðsskrifstofu hljómsveitar McClure. Um Storch-fjölskylduna er lítið vitað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Búinn að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford

Búinn að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða
433Sport
Í gær

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Í gær

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni