
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, útilokar ekki að bæta við sig leikmönnum í janúarglugganum.
Arsenal bætti vel við sig í sumar og er að eiga frábært tímabil. Liðið er með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Þó hafa Skytturnar glímt við mikil meiðslavandræði og vegna þess skoða Arteta og hans teymi að fá inn liðsauka þegar glugginn opnar eftir áramót.
„Við verðum að vera undirbúin og opin fyrir því,“ sagði Arteta, spurður út í þetta.
„Við vitum hvar hópurinn er viðkvæmastur svo við þurfum að vera viðbúin að bregðast við ef þarf.“