

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að hann sé meðvitaður um að Harvey Elliott hafi fengið lítið að spila hjá Aston Villa, en viðurkennir að hann hafi ekki verið í miklu sambandi við miðjumanninn.
Elliott er á láni hjá Villa en hefur aðeins spilað 97 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Aðspurður um erfiða byrjun leikmannsins í Birmingham sagði Slot. „Ég hef ekki haft mikið samband við hann, aðeins einu sinni eða tvisvar, og það var fyrir útileikinn gegn Feyenoord og eftir hann.“
„Ég veit auðvitað alveg hvernig staðan er. Ég held að ég viti hvernig honum líður, en það eru Villa sem ættu að svara spurningum um hans spilatíma.“
Elliott var lánaður til Aston Villa í sumar með það fyrir augum að fá reglulegan leiktíma, en hann hefur hingað til átt erfitt með að vinna sér sæti í liðinu hjá Unai Emery.