fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Komst að því að Spotify gefi brenglaða mynd af hlustun ársins – „Eiginlega eyðilagði Spotify Wrapped fyrir mér“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 4. desember 2025 15:30

Spotify Wrapped kemur í byrjun desember á hverju ári. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Notandi Spotify hafði hlakkað mjög til að sjá hið árlega uppgjör, „Spotify Wrapped“, eins og aðrir notendur en komst svo að því að tölurnar eru bjagaðar. Segir notandinn að þetta hafi eiginlega eyðilagt uppgjörið.

Eins og flestir notendur sænska tónlistarrisans vita þá fá þeir uppgjör sent í byrjun desembermánaðar um hlustun ársins. Kemur þar fram hversu margar mínútur viðkomandi hlustaði á, hvaða tónlistarstefnur voru vinsælastar hjá honum, topp tónlistarmennirnir eða hljómsveitirnar, topp plöturnar og lögin. Rúsínan í pylsuendanum er svo myndbandsbrot, kveðja frá „eftirlætistónlistarmanninum“ á árinu.

Eitthvað pínu skrýtið

En er þetta skothelt og rétt?

TikTok notandi að nafni Sean greinir frá því í myndbandi, sem fjallað er um í breska blaðinu The Mirror, að tölurnar geti ekki verið réttar. Sean tók eftir því þegar hann byrjaði að nota gagnasöfnunarforrit á borð við Last FM og Stats FM samhliða Spotify.

„Þetta eiginlega eyðilagði Spotify Wrapped fyrir mér, þegar ég komst að því að þetta gefi ekki nægilega góða mynd af hlustun ársins. Á hverju ári fannst mér Spotify Wrapped hljóma nokkuð eðlilega en sé samt eitthvað pínu skrýtið,“ segir Sean.

Var það vegna þess sem hann byrjaði að mæla hlustunina með öðru smáforriti. Þá komst hann að því að það var mikill munur á tölunum.

Meira en mánuður týnist

Nefnir hann dæmi um lag, „Fire“ eftir Waxahatchee. Last FM sagði Sean að hann hefði hlustað 47 sinnum á þetta lag á árinu en Spotify aðeins 22 sinnum.

„Samkvæmt netinu er ástæðan fyrir þessu sú að Spotify telur aðeins á tímabilinu 1. janúar fram í miðjan nóvember,“ segir Sean. „Þú missir mánuð af tónlist.“

Til að mynda hafi hann hlustað 40 sinnum á eitt lag sem kom ekki út fyrr en 14. nóvember. Þetta lag var hvergi að finna á mest hlustuðu lögunum há Spotify Wrapped. Þar sem talningin hefst ekki fyrr en um áramót að nýju þá munu þessar hlustanir aldrei telja.

Sjá einnig:

Óprúttnir aðilar lauma lélegum gervigreindarlögum á Spotify síður íslenskra tónlistarmanna

„Þetta er enn þá skemmtileg samantekt en þetta er ófullkomið,“ segir Sean. „Ég skil ekki af hverju það er ekki hægt að hafa talningartímabilið frá nóvember til nóvember.“

Fleiri atriði sem skekkja myndina

Sean er ekki einn um að finnast Spotify Wrapped vera eitthvað pínu skrýtið. Sérfræðingar hjá tónleikasíðunni SeatPick hafa bent á að hlustunarlengdin telur einnig fyrir hvert lag.

Bent er á að hlustandi verður að hlusta á að minnsta kosti 30 sekúndur af lagi til þess að það teljist fyrir Spotify Wrapped. Þetta hyllir styttri lögum, það er að hægt er að hlusta á tveggja mínútna lag fjórum sinnum oftar en átta mínútna lag.

Þá benda sérfræðingarnir einnig á að ef notandi notar Spotify eins og „útvarp“. Það er hefur lagalista í gangi í bakgrunninum fyrir vinnu, matseld eða eitthvað annað þá geti það bjagað niðurstöðurnar. Sem og ef hann notar tónlist á Spotify sem dúsu til að sofna. Tónlistin geti þá hljómað alla nóttina án þess að raunveruleg hlustun sé í gangi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“