fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Bjarni beinir spjótum sínum að stjórnvöldum vegna nýs launasjóðs – „Sem er sorglegt“

433
Fimmtudaginn 4. desember 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr launasjóður íslenskra afreksíþróttamanna var á dögunum stofnaður og kynntur af ÍSÍ og Afreksmiðstöð Íslands og opinberað hverjir hljóta styrk. Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, stakk niður penna um málið í blað dagsins og segir að betur megi ef duga skal.

„Launaflokkar afreksíþróttafólksins eru þrír talsins, en launþegar fá annaðhvort 560.000 krónur á mánuði, 300.000 krónur á mánuði eða loks 150.000 krónur á mánuði. Þetta er klárlega bylting þegar kemur að réttindum íþróttafólks, sem getur nú loksins farið að borga í lífeyrissjóð og verið skattgreiðendur með öllum þeim réttindum og kostum sem því fylgja. Það er búið að tuða endalaust yfir því hversu réttindalaust íslenskt íþróttafólk er og þetta er klárlega skref í rétta átt,“ skrifar Bjarni meðal annars.

Bjarna finnst þó leitt að ekki fari meiri peningar í málaflokkinn og skorar á stjórnvöld.

„Kannski er ég bara svona ógeðslega mikill „fúll á móti gæi“ en ég get ekki að því gert að hrista hausinn yfir því að langflestir launþegarnir séu að þéna 150.000 krónur á mánuði. Ég get fullyrt það að 150.000 krónur á mánuði gera þig ekki samkeppnishæfan á alþjóðavettvangi.

Við verðum einfaldlega að setja meiri peninga í íþróttafólkið okkar, ef við viljum gera meiri kröfur en þær að vera með og hafa gaman. Vandamálið liggur eflaust á mörgum stöðum. Stjórnmálafólk hér á landi virðist ekki sjá ágóðann af því að setja peninga í íþróttastarf, sem er sorglegt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Búinn að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford

Búinn að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða
433Sport
Í gær

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Í gær

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni