

Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Stafdal á Fjarðarheiði í gær hét Jón Ármann Jónsson. Jón var 87 ára að aldri, búsettur á Seyðisfirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn.
Mbl.is greinir frá.
Slysið átti sér stað um þrjú leytið í gær þegar tveir bílar rákust saman á heiðinni, átta manns voru i bifreiðunum. Jón Ármann var farþegi í öðrum bílnum og með honum í bílnum voru nánustu ættingjar hans.
Þeir sem voru í bifreiðunum voru fluttir á sjúkrahús en reyndust ekki alvarlega slasaðir. Erlendir ferðamenn voru í hinum bílnum.
Í samtali við Mbl segir Þorgeir Arason, sóknarprestur í Egilsstaðaprestakalli, að verið sé að leggja drög að minningar- og bænastund sem verði auglýst síðar í dag. Segir hann mikla sorg og samstöðu ríkja í samfélaginu.