fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Snorri allt annað en sáttur við Vísi – „Hvað ætli lesendum finnist um þessa mögnuðu nýju lægð“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 14. nóvember 2025 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, er allt annað en sáttur við fréttamiðillinn Vísi fyrir að nota mynd af honum og tveggja ára syni hans sem forsíðumynd um umfjöllun um meintan rasisma hans.

„Já, hvað ætli lesendum finnist um þessa mögnuðu nýju lægð sem Kjartan Kjartansson, blaðamaður Vísis, hefur náð með myndavali í þessari „fréttagrein“, þar sem enginn annar en tveggja ára sonur minn fær að prýða forsíðuna ásamt staðlausum ásökunum um ímyndaðan rasisma föðurins?,“ skrifar Snorri. Óhætt er að segja að hann uppskeri mikil viðbrögð við færslunni frá stuðningsmönnum sínum, sem flestir eiga það sameiginlega að hafa ekki mikla trú á íslenskum fjölmiðlum.

Myndin umrædda var tekin á nýlegum landsfundi Miðflokksins þar sem Snorri fagnaði meðal annars sigri sínum í varaformannskosningu með því að taka son inn upp í pontu og kynna hann sem nýjasta Miðflokksmanninn.

Einn þeirra sem er þó ekki á sama máli og Snorri er fréttamaðurinn Jóhann Hlíðar Harðarson sem sendir þingmanninum pillu:

„Það varst þú sjálfur sem tróðst syni þínum í sviðsljósið með því að tromma upp með hann á sviði.

Þú bauðst upp á þetta. Að fara svo að grenja núna er tækisfærismennska og tilfinningaklám.“

 

 

 

Í áðurnefndri umfjöllun Vísis er fjallað um þær fullyrðingar Snorra undanfarin misseri að fjölgun innflytjenda sé slík að hún endi með því að Íslendingar verði í minnihluta í eigin landi og þá gagnrýni sem sá málflutningur hefur sætt gagnrýni. Hefur Snorri meðal annars verið sakaður um að dreifa rasískri samsæriskenningu sem kennd er við „útskiptin miklu“ (e. Great Replacement Theory).

Var meðal annars rætt við stjórnmálafræðiprófessorinn EiríkBergmann sem sagði kenninguna einhverja áhrifamestu samsæriskenningu samtímans í Evrópu og Vesturlöndum.

„En það er augljóst að menn eru farnir að daðra eitthvað við hana,“ er haft eftir Eiríki í umfjölluninnni  og vísar meðal annars til málflutnings Snorra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“