fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Betur fór en áhorfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 12:32

Reynisfjara. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reynisfjara eins heillandi og hún er er jafnframt einn af varasömustu stöðum landsins að sækja heim, eins og margítrekað hefur verið í fréttaflutningi. Níu ára gömul þýsk stúlka lést 2. ágúst og var það sjötta banaslysið í fjörunni á innan við áratug. Systir hennar og faðir fóru líka í sjóinn en komust upp úr. Viðbúnaðarstig í fjörunni var aukið í kjölfar banaslyssins.

Þann 30. október birti Magnae Malachi myndskeið á TikTok-síðu af tveimur börnum sem aldan í Reynisfjöru hrífur næstum á haf út. Í upphafi þess má sjá að gult viðvörunarljós logar til að vara fólk við að það sé miðlungs hætta í fjörunni; ekki eigi að ganga inn á gula svæðið.

Í myndskeiðinu má sjá börnin tvö hlaupa undan öldu sem skellir þeim kylliflötum í fjöruna, en sem betur fer dregur aldan þau ekki með sér út í sjó. Börnin standa upp og hlaupa til foreldra sinna, en faðir heldur á mun yngra barni.

@magnaemalachi There were clear warning signs #iceland #beach #travel #warning #CapCut ♬ Jet2 Advert – ✈️A7-BBH | MAN 🇬🇧

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fylgjendafjöldi Kleina hrynur í kjölfar handtöku vegna meintrar nauðgunar

Fylgjendafjöldi Kleina hrynur í kjölfar handtöku vegna meintrar nauðgunar
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Í gær

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði
Fréttir
Í gær

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu