
Forráðamenn Real Madrid hafa ákveðið að setja verðmiða á brasilísku stjörnuna Vinicius Junior eftir að samningaviðræður milli aðila hafa siglt í strand.
Sacha Tavolieri á Sky segir að verðmiðinn á Vinicius sé 150 milljónir vera. Þetta gerir Real Madrid vegna þess að illa gengur að framlengja samning Brasilíumannsins, en sá sem nú er í gildi rennur út eftir um eitt og hálft ár.
Vinicius hefur reglulega verið orðaður við Sádi-Arabíu, en ljóst er að þar myndi hann þéna svakalegar fjárhæðir.
Real Madrid vonast auðvitað til að semja við Vinicius á ný en er félagið farið að setja sig í stellingar, fari svo að hann yfirgefi það.