fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Fyrrum leikmaður Manchester City í ævilangt bann

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir knattspyrnumenn hafa verið settir í ævilangt bann frá MLS-deildinni vestan hafs eftir umfangsmikil brot tengd veðmálum.

Deildin tilkynnti að Derrick Jones og Yaw Yeboah hefðu veðjað á knattspyrnuleiki á tímabilunum 2024 og 2025, þar á meðal á eigin lið. Báðir léku á sínum tíma með Columbus Crew.

Rannsókn hófst eftir að tilkynning um grunsamleg veðmál barst deildinni. Samkvæmt niðurstöðunni lögðu leikmennirnir meðal annars veðmál á að Jones fengi gult spjald í leik gegn New York Red Bulls, sem raungerðist í 3-2 sigri Crew.

MLS segir einnig líklegt að leikmennirnir hafi miðlað trúnaðarupplýsingum til annarra fjárhættuspilara um áform sín um að fá áminningu. Engar vísbendingar fundust þó um að úrslitum leikja hefði verið hagrætt.

Yeboah, sem var á mála hjá Manchester City á yngri árum en spilaði aldrei fyrir aðalliðið, spilar nú með Qingdao Hainiu í Kína. Bannið gildir aðeins innan MLS og er ekki á vegum FIFA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra