fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Leggja til að Ísrael keppi undir hlutlausum fána í Eurovision – Til að komast hjá „niðurlægjandi brottrekstri“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 15. september 2025 12:00

Framlag Ísraels var mjög umdeilt í vor. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúar evrópsku sjónvarpssamtakanna EBU hafa lagt til að Ísrael keppi undir hlutlausum fána í Eurovision á næsta ári. Yrði þetta gert til að leysa hnútinn sem kominn er upp en sífellt fleiri lönd hóta að taka ekki þátt ef Ísrael fær að keppa.

Greint er frá þessu á ísraelska miðlinum Arutz Sheva.

Fjöldi landa sem hóta að draga sig út úr Eurovision eykst sífellt en fresturinn til að staðfesta þátttöku er um miðjan desember. Þau lönd sem hóta þessu eru Ísland, Írland, Holland, Slóvenía og Spánn sem er eitt af „stóru fimm“ sem greiða mest til keppninnar. Lönd eins og Belgía og Finnland gætu fljótlega bæst í hópinn.

Nú hafa fulltrúar EBU óformlega viðrað þann möguleika að Ísrael fái að keppa en undir hlutlausum fána. Þetta þekkist til að mynda á Ólympíuleikunum þar sem Rússar, Serbar og fleiri hafa keppt undir hlutlausum fána.

Sjá einnig:

Spánverjar hóta að draga sig úr Eurovision vegna Ísrael – Eitt af „stóru fimm“

Stjórn EBU mun funda um þátttöku Ísraels í Genf í Sviss bráðlega. Talið er líklegt að Ísrael verði vísað úr keppninni frekar en að missa stóran hluta þátttakenda. Samkvæmt frétt Arutz Sheva er hið óformlega tilboð sem Ísraelsmönnum hefur verið gefið, það er að keppa undir hlutlausum fána, leið til að sleppa við „niðurlægjandi brottrekstur“ þeirra.

Önnur leið sem rædd hefur verið er að Ísraelar sjálfir dragi sig tímabundið úr keppninni. Sú þriðja er að ísraelska ríkisútvarpið fjarlægi sig átökunum á Gaza og fordæmi þær.

Ekki er hins vegar talið að Ísraelar taki neinum af þessum tilboðum. Telja Ísraelsmenn að þetta myndi setja „slæmt fordæmi“ og að óásættanlegt sé að keppa ekki undir eigin fána.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”