fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Stopp við Húrra í 2 mínútur kallaði á 10 þúsund króna glaðning í heimabanka

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. september 2025 08:00

Stæðið sem um ræðir. Mynd: Skjáskot ja.is. Athygli er vakin á því að myndin á ja er síðan í ágúst 2023.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konu sem stöðvaði í nokkrar mínútur fyrir utan verslunina Húrra á Hverfisgötu brá í brún þegar rukkun kom í heimabankann upp á 9.586 krónur.

Konan segist ekki hafa greitt þar sem hún fór ekki úr bílnum, þó hún hafi vissulega átt að greiða.

Ég stoppaði í tvær mínútur fyrir utan verslunina Húrra á Hverfisgötu 18 í síðustu viku, var að skutla slasaðri dóttur í vinnuna. Ég greiddi ekki fyrir að stoppa þar, sem ég hefði réttilega  átt að gera, en datt það ekki í hug þar sem ég fór ekkert út úr bílnum. Stoppaði bara í augnablik.

Segist konan í í kjölfarið hafa fengið rukkun í heimabankann upp á 9.586 kr.

SVÆÐI Zone – 5

Í samtali við DV segir konan að ekki komi fram á reikningnum á hvaða tíma hún var á stæðinu, eða réttara sagt fyrir hvað langan tíma hún er rukkuð fyrir.

Ef fyrirtækið, Parka Lausnir ehf. gat tekið mynd af bílnúmerinu þegar ég keyrði inn á stæðið, ætti það auðveldlega að geta skráð bílinn út þegar ég keyrði út af stæðinu og rukkað mig fyrir tímann sem ég var á stæðinu. Það hefði þá getað rukkað mig fyrir þessar 5 mínútur og einhverja þóknun, jafnvel.

Þegar heimasíða Parka er skoðuð má sjá að greiðsla fyrir stæðið að Hverfisgötu 18 er 800 krónur á klst. fyrstu tvær klukkustundirnar. Verðið eftir það er 1.200 kr. Á klst. Bílastæðið er opið allan sólarhringinn og rukkað er allan sólarhringinn.  Ef ekki er greitt innan 24 klst. Þá er vanskilagjald að upphæð 1.960 krónur lagt á. Viðskiptagjald (e. Transaction Fee) upp á 86 krónur er einnig rukkað. (Það gjald er ávallt rukkað, einnig þegar greitt er fyrir bílastæði um leið og stæðið er yfirgefið).

Verslunin Húrra sponsar 1 klukkustund fyrir alla viðskiptavini sína í Parka appinu.

Ég er svo sem fylgjandi því að fyrirtæki geti innheimt þóknun fyrir veitta þjónustu og sé heimilt að ákveða gjaldskránna, en þetta er nú meira bullið og mér finnst þeir fara frjálslega með frelsið. Er þetta ekki eitthvað spes?“ spyr konan.

Bendir konan á að Parka fékk 1 milljón í stjórnvaldssekt í sumar fyrir ýmis brot og ólögmæta viðskiptahætti.

DV fjallaði í júní um niðurstöðu Neytendastofa í fjórum úrskurðum sínum að fyrirtækin EasyPark, Green Parking ehf., Isavia Innanlandsflugvellir og Parka Lausnir ehf., hafi brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti sem og reglum um verðmerkingar með því að veita ekki upplýsingar um öll gjöld tengd stæðunum. Var fyrirtækjunum gert að greiða stjórnvaldssektir.

Sjá einnig: Segja vangreiðslugjöld ólögmæt – Kalla eftir skýrum reglum til að koma böndum á bílastæðabraskið

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin