Í tilkynningu frá Heimum kemur fram að með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingarflóra Smáralindar með fjölbreyttara úrvali veitinga sem höfðar til hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá fólki í leit að fljótgerðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun.
„Veitingasvæðið verður mikil lyftistöng fyrir þær tugþúsundir sem búa og starfa í kringum Smáralind og verður kærkomin viðbót í veitingaflóru svæðisins, hvort sem er á daginn eða á kvöldin,“ segir í tilkynningunni.
Af þeim þrettán veitingastöðum sem opna á nýja veitingasvæðinu eru tíu nýir í Smáralind og nokkrir sem hingað til hafa aðeins verið í miðbæ Reykjavíkur. Þá kemur veitingastaðurinn Hjá Höllu, sem margir þekkja frá Grindavík og flugstöðinni, auk tveggja alveg nýrra veitingastaða.
Veitingastaðirnir sem verða hluti af nýja veitingasvæðinu í Smáralind eru: Djúsí Sushi, Funky Bhangra, La Trattoria, Hjá Höllu, Fuego, Neo pizza, Yuzu borgarar, Gelato ís, Sbarro, Serrano, Subway, Top wings og 5 Spice by XO.
„Við höfum fengið til liðs við okkur farsælustu veitingaaðila landsins til að sjá um matarupplifunina á þessu nýja svæði í Smáralind. Svæðið sjálft er hannað af Javier Bootello og hans fólki hjá Basalt arkitektum og hugsunin er að þarna geti fólk komið saman, notið góðs matar og átt huggulega stund í fallegu umhverfi hvort sem það er í hádeginu eða á kvöldin,” segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, í tilkynningunni.
Gleði og eftirvænting sveif yfir vötnum þegar starfsfólk Heima og Smáralindar og rekstraraðilar nýju veitingastaðanna komu saman til að innsigla samstarfið. Búist er við að framkvæmdum ljúki á næstu vikum og að hægt verði að opna nýju veitingastaðina um mánaðamótin október/nóvember.