Donald Trump Bandaríkjaforseti er gáttaður á fullyrðingu æðstaklerks Írans, Ayatollah Ali Khamenei, um að Íran hafi sigrað í átökum við Ísrael.
Trump skrifar á Truth Social í dag:
„Hvers vegna myndi svokallaði „æðsti klerkurinn“ Ayatollah Ali Khamenei, frá stríðshrjáða landinu Íran, halda því svona óforskammað og bjánalega fram að hann hafi sigrað stríðið við Íran þegar hann veit að slík fullyrðing er lygi?“
Trump vísaði til þess að Khamenei er strangtrúaður múslími og það fari gegn trú hans að ljúga. Sannleikurinn sé sá að Íran var rústað í þessum átökum og þá einkum kjarnorkurannsóknarstöðvum landsins.
„Ég vissi NÁKVÆMLEGA hvar hann [Khamenei] hafði leitað skjóls en ég leyfði hvorki Ísrael né bandaríska hernum – sem besti og sterkasti her í heimi – að taka hann af lífi. ÉG BJARGAÐI HONUM FRÁ MJÖG LJÓTUM OG ÓVIRÐILEGUM DAUÐDAGA og hann þarf ekki að segja TAKK TRUMP FORSETI.“
Trump tók fram að hann hafi auk þess skipað Ísrael að afturkalla herflugvélar sem var flogið í átt til Íran, en þessar vélar höfðu annars valdið gífurlegum skaða og miklu manntjóni í Íran.
„Þetta hefði verið langstærsta árás stríðsins. Undanfarna daga hafði ég unnið að mögulegri afléttingu efnahagsþvingana og öðru sem hefði gefið Íran gott færi á að ná að rétta kútinn hratt. Þvinganirnar eru þungbærar. En nei, í staðinn fæ ég yfirlýsingu sem er full af reiði, hatri og viðurstyggð og ég hætti um leið allri vinnu að afléttingum og öðru.“
Trump segir að Íran þurfi aftur að fara að fylgja reglum og viðmiðum á alþjóðavísu, annars eigi þessi þjóð enga framtíð.
„Hlutirnir munu bara versna fyrir þá. Þeir eru alltaf svo reiðir, uppstökktir og óhamingjusamir og sjáðu hvað það hefur skilað þeim – brenndu og sprengdu landi sem á sér enga framtíð, her sem hefur verið tortímt, hrottalegum efnahag og DAUÐA allt í kringum þá. Þeir eiga enga von og þetta verður bara verra. Ég vildi að leiðtogar Íran áttuðu sig á því að þeir ná meiru með HUNANGI heldur en EDIKI. FRIÐUR.“
Trump sagði fyrr í dag á blaðamannafundi í Hvíta húsinu að ef Íran byrjar aftur að auðga úran til að búa til kjarnorkuvopn þá muni Bandaríkin senda fleiri sprengjur.