Þetta kemur fram í fréttaskýringaþættinum „Uppdrag granskning“ sem Sænska ríkissjónvarpið framleiðir.
Í þættinum kemur fram að Foxtrot leiti logandi ljósi að fólki sem er viljugt til að taka að sér að ráðast á skotmörk í Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi.
Rawa Majid, leiðtogi Foxtrot, er sagður vera undir miklum þrýstingi frá Íran um að gera slíkar árásir. Er hann sagður hafa beðið næstráðendur sína í glæpasamtökunum um að finna fólk sem geti tekið að sér að gera árásir af þessu tagi.
Þessir næstráðendur hans hafa sett sig í samband við marga sænska glæpamenn að undanförnu og krafist þess að þeir aðstoði við að finna fólk, sem geti gert árásir á ísraelsk og bandarísk skotmörk.
Þeim, sem vilja ekki taka þátt í þessu, er að sögn hótað og sagt að framvegis muni Rawa Majid líta á þá sem óvini.
Fram að þessu hafa að minnsta kosti sjö fyrirhugaðar árásir og árásir á ísraelsk skotmörk í Svíþjóð, Danmörku og Belgíu verið raktar til Foxtrot.